þriðjudagur, nóvember 01, 2005

You are what you eat!!!!

Já horfði á hluta af þeim ömurlega þætti í gær.. Svo þegar kellingin var að sýna fitubollunum 2 hvað þær átu mikinn viðbjóð á viku þá fékk ég nóg og hugsaði að ég verði að fara að gera e-ð í mínum málum. Skella mér í ræktina og borða hollari mat. Stóð upp til að segja við Klöru að nú ætlaði ég að fara í átak. Klara var inni í eldhúsi og ég strunsaði þangað og ég var ekki fyrr kominn inn í eldhús þegar ég mundi eftir Malta bita kassanum uppí skáp.... ohhhhhhhhhh
Klara: "Hvað varstu að segja?" Ég fékk mig ekki í að segja henni það og ákvað að fá mér bara nokkra bita og kók, fara inn í stofu og horfa á e-ð annað. .... Þar fór þetta átak 1, 2 og Geir.
Er ekki búinn að ákveða næsta átak... En það fer að bresta á!!!!
hoa
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com