laugardagur, febrúar 18, 2006

Ragnhildur floginn

Ragnhildur kjútípæ flaug af stað eldsnemma í morgun til Danmerkur. Mér finnst hún vera mikil hetja að fara svona ein, þetta er í annað skipti sem hún fer alein til DK. Það er nú ekki til að hjálpa til að nú má ekki lengur fylgja börnunum upp heldur verður maður bara að kveðja niður við passatjékkið og það finnst mér mjög súrt.. Það má andskotan ekkert lengur...
Hún ætlar að vera í viku hjá ömmu sinni og afa (og tessju) og auðvitað verður Emilja heimsótt. Þetta verður örugglega quality time hjá þeim öllum.

Vinkonurnar að kveðjast á sínum tíma Posted by Picasa
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com