miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Laxi og Lára

Þrölli Þruma og frú Lára eignuðust stelpu á laugardaginn!!!! Innilega til lukku með það kæru vinir...

Örn Viðar Grétarsson er búinn að netvæðast og getið þið sent honum línu á ornvidarg@hotmail.com . Fögnum komu hans í netheima!!!

Ánægður með Roy Keane að ræpa yfir liðsfélagana eftir Boró leikinn. Veit ekki hvað þetta gerir fyrir móralinn, en þvílík ræfils frammistaða hjá mínum mönnum á laugardaginn. Eins gott að þeir geti e-ð í kvöld.
Talandi um Man U þá hætti ég við að fara með Nonna og Æbba til Manchester á föstudaginn að sjá Man U - Che. Gat farið á föstudagsmorgun og komið heim á mánudaginn. Miðinn á völlinn kostaði 20.000 kall. Fjandinn hvað það er dýrt. Svo var það flugið á 30.000 en gat fengið að gista á herberginu hans Nonna, því hann flýgur út með hópinn... Ohhh aldrei geri ég neitt svona.. óþolandi skynsamur og sparsamur.. eða bara nýskur :(

Ég er heima í dag með Hrafn Elísberg. Hann er smá lasinn greyið og hóstar eins og vindurinn og talar eins og hann hafi verið á viku viskí fylleríi.
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com