þriðjudagur, júní 13, 2006

Hjössi á Tuborgslóðum

Já lítið komið á Hjössa mæló undanfarið. Ekki að undra því ég er staddur í DK og einbeiti mér að öðrum hlutum. Ég átti auðvitað að vera á Stones tónleikum, en eins og öllum lesendum Hjössa mæló er kunnugt, þá var þeim tónleikum frestað til 3. sept.
Mikið búið að bralla síðan við komum út og mikið búið að gerast. Ég gekk fallega inn í fertugsaldurinn 3. júní síðastliðinn og var það lítið mál fyrir mann sem enn heldur að hann sé 16!!!! Klara gaf mér Ipod og er ég gríðarlega sáttur við að eignast loksins þann snilldargrip.
Annars er lítið annað gert en að drekka Tuborg, éta eins og svín og tana sig þar á milli. Búið að vera rudda veður og nettur Funi Johnson í gangi. Allt eins og þetta á að vera!
Hils frá DK

Hjössi Tan
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com