miðvikudagur, júní 29, 2005

Ragnhildur

Sæl verið þið öll

Svarið við getrauninni er í raun komið. Þetta er auðvitað rebbi en hann er með 14 rjúpuunga í kjaftinum og eitt fuglshræ að auki. Þessir ungar hafa verið i eggjunum en rebbi bara sótt þá þangað. Huggulegur andskoti.. Og auðvitað er það Steini mæló sem á heiðurinn af þessu öllu. Ætti frekar að kalla hann Steina sídrepandi...
Annars er það að frétta að Ragnhildur mín á afmæli á morgun og verður 8 ára gömul.. púhe hvað þetta líður hratt. Ekki langt síðan hún var bara pínu lítil og með bollukinnar.
Í dag er hún bara pæja...

Kallinn á leiðinni heim í dag, skál fyrir því!!!!

Ragnhildur pæja Posted by Hello
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com