laugardagur, nóvember 12, 2005

Líf og fjör

Daginn
Það er óhætt að segja að það hafi verið líf og fjör í spóahöfðanum í gær. Elísa systir er í USA og Bjarki var að fara e-ð út á lífið. Mosfellsrútan kom því með krakkaskarann í Spóahöfðann og var því mikið stuð í gærkvöldi hjá okkur. Núna eru allir vaknaðir og ég og Klara erum eins og friðagæsluliðar að deila út morgunmat!
Í kvöld verður svo allt vitlaust eða réttara sagt vitlausara í Hjallahlíðinni hjá Bjarka. Þá er komið að honum að vera með öll börnin. Ég og frú KG erum á leið á árshátíð VST, væntanlega í allra síðasta sinn. Úfff grey Bjarki...

Verð að fara að segja e-ð með viti.. Þetta er orðið að e-u heimilisblaðri og ekkert annað. Þarf líka að fara að downloada myndaforritinu svo ég geti sett inn myndir af og til. Kannski myndir af Klöru fáklæddri.. Það held ég að þá mundi vinsældir Hjössa mæló rjúka upp.

Hjössi Hefner
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com