mánudagur, nóvember 14, 2005

Cool??

Já maður var flottur á sínum tíma... Þarna var skottið að gera góða hluti og það get ég vottað að tjedlingarnar voru vitlausar í mig!!!!

Einnig er vert að koma aðeins inn á þessa skyrtu... hahahah Djöfull er hún ljót!! Ekki hægt að segja að jólatréð þarna fyrir aftan sé að gera gott mót heldur. Eitt er þó víst, að skyrtan er ekki ljótari en sú sem Erna tengdó gaf mér á sínum tíma (5-6 ár síðan). Erna keypti hana í DK og gaf mér í afmælisgjöf ef ég man rétt. Ég sendi Nonna með hana út til að reyna að skipta henni. Nonna fannst skyrtan svo ljót að hann klæddi e-n róna á strikinu í skyrtuna og tók af honum mynd. hahaha þetta fannst frú Ernu ekki fyndið, en Gísli Ben hló úr sér líftóruna. En ég verð nú að koma inn á það að Erna er mikil smekk kona og ég veit bara ekki hvað kom yfir þá gömlu þetta vorkvöld í Kaupmannahöfn..
Nóg komið af ljótum skyrtum!!!

Hjössi fesjón
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com