mánudagur, ágúst 06, 2007

Breytinga þörf?

Hjössi mæló er fluttur hingað....



http://hjortur.blog.is/blog/hjortur/







.

fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Versló

Nei sælar...
Hjössi hér!!
Er loksins búinn að setja myndir frá Vestfjörðum inn á Flickrið. Þeir sem hafa ekkert að gera og nenna að skoða þá eru mökkur af myndum hérna!!
En núna er það víst verslunarmannahelgi. Ég veit ekkert hvert eða hvort við förum eitthvað. Við hjónin erum mis áhugasöm um ferðalag. Spurning um að taka bara Fýlupúkann heima þessa helgina? Nei sjammón við hljótum að fara e-n skottúr.
Skrifa enga ferðasögu frá Vestfjörðum en til að gera langa sögu stutta þá var svakalega gaman og við fengum frábært veður. Mér finnst rosalega gaman að vera þarna í þessu flotta landslagi. Ekki á mörgum stöðum hérlendis, þar sem eru grónar brekkur alveg upp að klettabelti. Klara var pínu hrædd að keyra yfir heiðarnar þegar maður var að keyra á misbreiðum vegum og brött hlíðin var það eina sem Klara sá!!
Ragnhildur flogin út til DK að hitta ömmu og afa, jú og væntanlega Emiliu vinkonu sína. Hún var samt pínu feimin að hitta hana því danskan er farin að týnast.

Best að koma sér heim og suða í Klöru um að koma í útilegu!!

Hafið það gott um helgina og keyrið varlega!!!!

Hils

Hjössi Mæló!
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com